11.2.2012 | 21:53
Tónleikar Sólstafa.
Við vorum komin snemma á staðinn. Þetta var allt svo spennandi. Tónleikar með syni mínum og vinum og að koma aftur í Gamlabíó. Þangað hef ég ekki komið í áratugi og ég var búin að heyra að það væri óbreytt nema sviðið sem hafði verið stækkað. Tveir fyrstu bekkirnir teknir.
Ég man vel hvernig hitt sviðið var og hvernig maður horfði upp ef maður sat á fyrstu bekkjunum í bíóinu.
Við komum inn í forsalinn.
Jú þarna var allt eins. Ég fór upp í tröppu til að taka mynd yfir salinn. Ég tók mynd en það var eitthvað að henni og ég fór að stilla myndvélina. Þá kom atvinnuljósmyndari og mér fannst hann ætla að standa fyrir mér. Ætlar þú að standa þarna fyrir framan mig spurði ég manninn. Nei, ég ætlaði bara að taka mynd af fjöldanum sagði maðurinn. Alltaf er ég með munninn opinn. :-)
Ég hitti unga konu niðri og hún spurði mig hvort ég væri ekki mamma Gumma. Eitthvað kannaðist ég við hana og hún sagði mér að við hefðum verið í söngnámi saman hjá Mörtu Halldórsdóttur. Ég mundi þá eftir henni og spjallað dálítið.
Adda var komin með börnin og vin sinn. Það var farið að hleypa inn. Ég tók utan um miðan minn og hálpartinn hélt að það myndi einhver rífa af honum, eins og gert var í gamla daga. Miðana hafði ég fengið fyrir viku.
Við gengum inn og leituðum af sætunum okkar, fundum þau en nú kom babb í bátinn. Konan sem ég hitti og önnur kona til voru í tveimur sætum sem við áttum. Við héldum að þetta væri misskilningur og þær hefðu farið sætavillt en það var ekki þær voru líka eins og við með miða á 7. bekk 10 og 11.
Við fjölskyldan ætluðum að sitja saman sagði ég. Pálmi fékk þær fram með sér að athuga þetta og það leið og beið þangað til hann kom aftur. Hann kom og ég frétti seinna að þær hefðu fengið sæti uppi en ekki verið mjög sáttar sem von var. Söngsystir mín sagði þó að þap væri mikilvægt fyrir fjölskylduna að vera saman. Þær fengu miðana endurgreidda.
Seinna sá ég söngsystirina uppi og ekki veit ég hvernig henni leið. Mér þykir þetta leitt en ég gat ekkert get af þessu.
Tónleikarnir byrjuðu og það var mjög gaman. Ég reyndi að taka nokkrar myndir og vídeó.
í hléinu fórum við niður, Gummi var búinn að segja börnunum að koma. Niðri var eins umhorfs eins og ég mundi. Salernin á sínum stað og þarna sá ég hurð sem ég mundi ekki eftir. Þangað inn fórum við og vorum á réttum stað.
Ég þáði einn bjór hjá Gumma.
Hér sést Gummi, mðe hveiti á bolnum baksviðs og svo eru hluti af fólkinu sem tók þátt í tónleikunum með þeim á hinni myndinni. Næst ætla ég að setja mynd af börnunum hans Gumma sem voru þarna niðri líka.
Það var gaman að koma þarna niður og sjá herbergi í húsinu sem ég hafði aldrei séð áður. Hljómleikarnir héldu áfram. Það höfðu verið þrjú sæti laus fyrir framan okkur en nú kom fólk þangað. Andri á flandri settist fyrir framan mig.
Það er ekki hægt að lýsa tónleikum og því sem maður upplifir og ég ætla ekki að reyna það. Strákarnir í Sólstöfum smellpassa saman og mynda eina heild. Allir eru þeir mjög góðir og engan má vanta. Þeir eru hlekkir í keðju.
Gestirnir sem komu frma voru mjög góðir. Mér fannst saxófónleikurinn magnaður. bakraddirnar voru góðar. Píanóleikrainn, kórinn og svo slagverksleikararnir.. Pálmi hafði smíðað grind undir stóran disk sem sleginn var og beið ég í ofvæni eftir því. Gong heitir hljóðfærið. Ég nefni ekki nöfn allra hér og vona að ég hafi engum gleymt en sem sagt þetta var úrvals lið sem var með þeim.
Ekki má gleyma henni Gerðii G. Bjarklind. Hún gat ekki komið í eingin persónu því hún var á Spáni en röddin hennar hljómaði í laginu Stinningskaldi og í Stormfari.
Þetta voru hreint og beint æðislegir tónleikar og ekki skemmdi það fyrir mér að heyra öðru hvoru kallað Gummi, elska þig.
Eftir hljómleika fór ég aftur niður og hitti margt fólk sem ég þekki í gegnum Gumma minn frá fyrri tíð. Gummi fór með okkur og sýndi okkur meira niðri. Hann fór undir sviðið og upp á það með okkur. Eitthvað sem ég á örugglega ekki eftir að upplifa aftur.
Pálmi með vini Gumma á sviðinu. Við yfirgáfum svo húsið. Það var verið að taka öll hljóðfærin út og það átti að vera búið af því á vissum tíma. Það hafði reyndar tekið allan gærdaginn að koma dótinu fyrir.
Hljómleikagestum var boðið á Bar 11 en þangað áttum við ekkert erindi. Við héldum upp á Hverfisgötu því þar var bílinn okkar í bílstæðishúsinu. Þar lentum við í ævintýri því ég notaði ekki kortið okkar rétt og við vorum í stökustu vandræðum þar til að ágæt yngri hjón komu og hjálpuðu okkur. Þetta var endirinn á ágætu kvöldi.
í dag kom svo stór grein í Mogganum og myndir frá hljómleikunum Við Pálmi lentum á hópmynd með fjölskyldu Adda sem ljósmyndarinn sem ég nefndi fyrr tók. Þar vorum við sögð vera í fjöslkyldu Adda.
Bloggar | Breytt 27.2.2012 kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)




















