Stór dagur í lífi minu. Sólstafir.

 

Sólstfir

Ég hlakka til í kvöld því þá fer ég á tónleika með Sólstöfum í Gamlabíói. Ég hlakka til að sjá son minn og vini hans á sviði þar. Ég er stolt móðir í dag.  

Ég lít til baka og sé strákna mína á fyrstu tónleikum sínum. Þeir voru að læra á blokkflautur í Tónskóla Sigursveins og þessir tónleikar voru í Fellaskóla. Þegar þeir byrjuðu að spila viknaði ég. Þeir vita nú ekkert af því.  

Ég vildi gjarnan veita þeim tónlistarmenntun ef þeir vildu hana. Beggi lærði á gítar of kom einu sinni fram á tónleikum. Hann stóð sig vel en síðan var sú saga ekki lengri.

Gummi tók fyrsta stig í píanónámi og hætti svo. En hann fór fljótt að spila á trommur og þegar hann var 13 ára fékk hann að hafa trommurnar sínar upp á lofti í Langagerði hjá pabba og mömmu. Fljótlega var hann kominn í hljómsveit og það er langt síða að þeir félagarnir í Sólstöfum byrjuðu að spila saman. Þeir eru allir æskuvinir.

Þeir voru snemma þekktir í vissum hópum og hafa gert það vel erlendis. Þeir hafa gefið út nokkrar plötur og sú síðasta sem þeir gáfu út hefur vakið mikla athygli.

Í kvöld spila þeir lögin af henni og það koma líka gestir.  Ég hlakka til því ég hef ekki haft mikil tækifæri til að sjá þá á tónlekum. Tónleikar þeirra hafa yfirleitt verið svo seint eða þá á hátíðum bæði hér og erlendis.

Nú er bara að klæða sig í Sólstafabol og mæta á staðinn.  

 

PS Hún Heiða frænka mín á stórafmæli í dag en mamma hennar átti einmitt stórafmæli þegar hann Beggi spilaði á tónleikunum sínum.

Bloggfærslur 9. febrúar 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband